Áhugi minn á ljósmyndun byrjaði snemma á unglingsaldri... fyrst um sinn myndaði ég nánast eingöngu mótocross keppnir og mér þykir alls ekkert leiðinlegt að monta mig af þvi að myndir eftir mig hafa verið birtar í Dirt Bike Rider og fleiri alþjóðlegum ritum tengdum sportinu.
Ekki leið þó á löngu áður en landslagsljósmyndir og portraitmyndir fóru að vekja hjá mér áhuga. Og síðastliðin ár hef ég ferðast um landið og tekið myndir ásamt því að taka að mér hefðbundnar fjölskyldu myndatökur við ýmiss tilefni svo sem fermingar, brúðkaup, útskriftir, barnsburði o. fl.
Í dag tek ég að mér margvísleg ljósmyndaverkefni allt frá auglýsinga og vörumyndatökum yfir í hefðbundnar fjölskyldumyndatökur.